Ferðaskrifstofuleyfi
Náttúruferðir starfa með leyfi Ferðamálastofu. Smelltu hér til að skoða leyfið.

Ferd

Valid XHTML 1.0 Strict
Web Standards Group Member

Um okkur


Náttúruferðir hafa verið leiðandi í náttúruskoðunarferðum til Íslands í rúm tuttugu ár og í gegnum árin byggt upp gott samstarf við margar virtar náttúruferðaskrifstofur í Evrópu og N-Ameríku.

Ferðirnar eru lagaðar að óskum viðskiptavinanna. Allir hafa þeir áhuga á náttúru landsins en sumir vilja einbeita sér að fuglunum, flórunni, hvölunum eða jarðfræðinni.

Hóparnir eru af öllum stærðum og gerðum, t.d. nokkrir vinir í fuglaskoðun eða nokkrir tugir framhaldsskólanema í tengslum við jarðfræðinámið.

Gudrun
Guðrún Andrésdóttir býr að ríflega tuttugu ára reynslu í ferðaskipulagningu og því farin að þekkja hvaða þættir það eru sem gera góða ferð enn betri. Áður en hún hellti sér út í ferðabransann starfaði Guðrún við kennslu, búskap og gistiheimilisrekstur. Einnig hefur hún komið að ýmsum umhverfismálum og starfað með lífrænu vottunarstofunni Tún.

AJ
Andy Jones er jarðfræðingur að mennt og ákafur fugla- og hvalaskoðari. Hann hóf sinn starfsferil í heimalandinu Wales sem landvörður á eynni Skomer en seinna fór hann víða í tengslum við ýmis störf fyrir breska fuglaverndarfélagið. Náttúran og umhverfið hafa alla tíð verið Andy hugleikin og undanfarna tvo áratugi hefur hann leitt náttúruskoðunarferðir víða um heim.