

Um okkur
Náttúruferðir hafa verið leiðandi í náttúruskoðunarferðum til Íslands í rúm 25 ár og í gegnum árin byggt upp gott samstarf við margar virtar náttúruferðaskrifstofur í Evrópu og N-Ameríku.
Ferðirnar eru lagaðar að óskum viðskiptavinanna. Allir hafa þeir áhuga á náttúru landsins en sumir vilja einbeita sér að fuglunum, flórunni, hvölunum eða jarðfræðinni.
Hóparnir eru af öllum stærðum og gerðum, t.d. nokkrir vinir í fuglaskoðun eða nokkrir tugir framhaldsskólanema í tengslum við jarðfræðinámið.
Guðrún Andrésdóttir býr að 25 ára reynslu í ferðaskipulagningu og því farin að þekkja hvaða þættir það eru sem gera góða ferð enn betri. Áður en hún hellti sér út í ferðabransann starfaði Guðrún við kennslu, búskap og gistiheimilisrekstur. Einnig hefur hún komið að ýmsum umhverfismálum og starfað með lífrænu vottunarstofunni Tún.
Andy Jones er jarðfræðingur að mennt og ákafur fugla- og hvalaskoðari. Hann hóf sinn starfsferil í heimalandinu Wales sem landvörður á eynni Skomer en seinna fór hann víða í tengslum við ýmis störf fyrir breska fuglaverndarfélagið. Náttúran og umhverfið hafa alla tíð verið Andy hugleikin og undanfarna tvo áratugi hefur hann leitt náttúruskoðunarferðir víða um heim.